Oddur Klöts

Oddur Örn Ólafsson, eða Oddur Klöts, er íslenskur listamaður sem vinnur á sviði kvikmynda, sviðslista og tónlistar.

Í verkum sínum leitast Oddur við að skoða hinar dýpri og ósögðu hvatir mannskepnunnar. Verk hans eiga heima á óræðu sviði milli drauma og raunveruleika og tekst gamanið í verkum hans á við alvarleikann á skemmtilegan hátt.

Klöts er menntaður íslenskufræðingur frá Háskóla Íslands og stundar nú nám við sviðslistadeild Listaháskóla Íslands.